Bloggið hans Finnsa

Velkomin til Finnsa

22.01.2009 23:42:54 / finnsi

Erum orðin sex hér í Arnartanganum

Veit ekki hvort það taki því eitthvað að vera að blogga hér, facebook er orðin ansi stór bóla sem virðist vera að yfirtaka allt blogg, er samt að spá í að gefa þessu smá séns og kanna hvort það sé eitthvað lífsmark hér.

 Við fjölskyldan kynnum til leiks nýjan hrekkjalóm, hann kom í heiminn 13 janúar, var 54cm og 17 merkur, semsagt svona lítill og pattaralegur, þrátt fyrir að hafa fylgst náið með þessari athöfn þá skil ég enn ekki hvernig rúmlega hálfur metri og tæplega 5 kíló komast þarna út án þess að valda stórkostlegum skaða á leiksvæði okkar feðranna.

Þetta tók reyndar sæmilegan tíma eins og gefur að skilja, reyndu að koma 3 tommu röri í gegnum 2 tommu gat og sjáðu hvort það taki þig ekki allavega sólarhring, ég er líka nokkuð viss um að maður myndi slasa sig talsvert á þessari tilraun.

 Kallgreyið var nú líka doldið dasaður eftir að hafa ruðst þarna út og þurfti að fá smá hjálp svona fyrstu klukkutímana eftir að hann kom í heiminn, svona meðan mesta þreytan var að líða úr honum.

 Þetta er örugglega æðislegt líf að vera svona lítill, sofa, drekka og skíta er það eina sem lífið snýst um, þegar að drykkjunni kemur er hann doldið líkur einhverjum frænda sínum (úr móðurættinni að sjálfsögðu), ef hann drekkur of mikið þá lognast hann bara útaf og rankar við sér ca 2 tímum síðar, og þá veit hann ábyggilega ekkert um það hvernig hann komst úr stofunni og inn í svefnherbergi, svo er hann líka sískítandi og ég veit ekkert um það heldur, það hlýtur að vera eitthvað úr móðurættinni líka, og hvaðan allt þetta prump kemur, það veit ég ekkert um, (skellum því bara á móðurættina líka) ég skal samt viðurkenna að ég kannast eitthvað við þetta svefndæmi, hann vill vera sofandi nánast bara alltaf, mér finnst ofsa gott að sofa svo hann gæti haft það frá mér, hann er líka ótrúlega fallegur og ég skal viðurkenna að ég er nú sjálfur alveg ofboðslega fallegur svo fegurðin stimplast bara alfarið á mig fyrir utan þessar bollukinnar, ég er ekki með svoleiðis.

Jæja meira seinna
Kiss kiss            



        


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.12.2008 13:43:30 / finnsi

Jólakveðja

Gleðilega hátíð


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.09.2008 11:10:12 / finnsi

Fjölgun í Arnartanganum

Jæja nú er haustið að skella á og allt að detta í sínar föstu skorður, allir farnir að vinna og umferðin gefur til kynna að skólarnir séu að byrja líka. Sumarið var nottla bara æðislegt og var mikið ferðast og margt skemmtilegt brallað.

Seinasta vor þá ákváðum við Gugga að búa til nýtt barn, og eftir nokkrar skemmtilegar tilraunir þá kom í ljós að ofninn var komin í gang og þar er allt að gerast.

Þann 8. janúar á Lúlli litli að byrja að öskra á okkur og halda okkur vakandi á ókristilegum tímum. En það er nú bara spennandi og ég verð að viðukenna að ég var nú ekkert voða svekktur þegar ég sá glitta í stóran og flottan tippaling í seinasta sónar.

En svona miðað við hvernig hún Gugga mín lítur út núna eftir ca 23 viku þá er ég ansi hræddur um að þarna inni hljóta að vera bræður, tveir eða jafnvel þrír, ég veit ekki hvar þetta endar en aumingjans konan er allavega hætt að sjá á sér lappirnar og samt bara hálfnuð, fyndið atvik henti einmitt í dag þegar við röltum framhjá auglýsingabás World class, þar stóð spengileg kona og var að dreifa einhverjum blöðum, hún leit á Guggu, svo niður á magann, brosti og “má ekki bjóða þér stundarskrá fyrir World class,, ég sprakk úr hlátri og við röltum svo hamingjusöm í burtu með dagskránna.

Svo svona aðeins af mér líka, ég virðist vera ótrúlega meðvirkur og held að ég sé að taka þessa óléttu of alvarlega, ég er að verða sjálfur hálf óléttur, ég er alltaf þreyttur, ég er farin éta minna í einu en er síétandi, þarf að pissa á hálftímafresti, þyrfti helst að blunda aðeins seinnipartinn og er komin með einhverja ís dellu, gúffa í mig heilum haug af ís á hverju kvöldi og svo er ég ekki frá því að ég sé að fá kúlu líka, með þessu áframhaldi er ég hræddur um að ég þurfi að beygja mig til að sjá félagann rétt eins og Gugga þarf að gera til að sjá ............ hmmm, ( lappirnar ).   

Allavega þá er bara allt gott að frétta héðan úr sveitinni og við höldum bara áfram að stækka og stækka.

Hér eru svo myndir af Lúlla litla sem voru teknar eftir ca 21 viku og ein af Guggu síðan á ca 17 viku

Kveðja Finnsi og Gugga fara stækkandi.

Ca 21 vika

Gugga komin ca 17 vikur


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.07.2008 13:04:18 / finnsi

Myndir

Jæja nú fara helgarnar bara í ferðalög og þessháttar skemmtun, 6 júní þá skelltum við Gugga okkur til Spánar, vorum þar í þrjá daga og böðuðum okkur í sólinni og höfðum gaman, svo keyrðum við til Frakklands og eyddum þar 4 dögum í borginni Montpellier.
Þegar heim var komið þá tóku tjaldferðalögin við,  Álfaskeið varð fyrir valinu í fyrstu ferðinni,og þar var eins gott að regnhlífin virkaði því þar rigndi alveg heilan helling, um síðustu helgi vorum við á Flúðum og fengum talsvert betra veður þar, fyrir utan töluverðan næturkulda, held að það hafi farið niður í 4 eða 5° en það bjargaðist nú alveg. Um næstu helgi verðum við svo líklegast í Húsafelli, annars kemur það betur í ljós þegar nær dregur, förum allavega þangað sem veðrið á að vera best, án þess þó að þurfa að fara þvert yfir landið.

Kv Finnsi og Gugga




Create a Free Slideshow

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.05.2008 00:35:31 / finnsi

Endalaust hjólerí

Af okkur stórfjölskyldunni er allt gott að frétta, við hjólum og hjólum og hugsum ekki um mikið annað þessa dagana, annað hvort nýtum við frítímana í að leyfa stelpunum að hjóla eða erum að hjóla sjálf, stelpurnar eru búnar að ná frábærum tökum á þessu og eru að fýla sportið í tætlur. Við Gugga erum hins vegar búin að krossast slatta en meiri tími hefur farið í lestur og æfingar fyrir hjóla prófið, við fórum í bóklegt próf á mánudaginn og okkur gekk rosa vel, náðum í fyrstu tilraun og vel það. Núna eru bara stanslausar æfingar fyrir verklega prófið, akstur í umferð, sikk sakk um keilur og fleira í þeim dúr. Með þessu áframhaldi ættum við að vera komin með prófið í hendurnar eftir rúma viku, stefnt var á að taka verklega prófið á laugardaginn en þar sem við verðum upptekin við drykkju, söng og gleði um helgina þá frestast prófið líklega um viku, þá tekur næsti hausverkur við, hvernig hjól á maður að fá sér og hvernig galla, ég held að við verðum úúúberflott á flottum hippa í mögnuðu leðurdressi. Allavega veit ég hvað ég geri við frúna þegar hún kemur heim eftir hjólatúr uppáklædd í leðurgalla og netasokkabuxunum sínum, þá tek ég á móti henni og skipa henni að þrífa og bóna fákinn, muahahahaha.

Þetta er orðið gott í bili, hér eru myndir af okkur í æfingargallanum
Kv Finnsi og Gugga.

Gugga að hjóla.                                             Ég að hjóla.
 http://xs227.xs.to/xs227/08184/cimg3073468.jpg

» 3 hafa sagt sína skoðun

26.04.2008 02:20:25 / finnsi

Hjóla og hjóla meira

Ég kom þessu ekki almennilega á síðuna, en ef þú klikkar á linkinn fyrir neðan, þá opnast slideshow af stelpunum.
http://slideroll.com/show.php?s=zh3a367j

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.04.2008 23:22:39 / finnsi

Fyrsta hjólaferðin hennar Sigurbjargar Söru


Komin í gallan og allt klárt



Svo er hér smá video af fyrstu ferðinni
http://www.youtube.com/watch?v=5Iv0YUxdWyQ



» 1 hafa sagt sína skoðun

19.04.2008 00:08:29 / finnsi

Vorbloggið

 

Jæja nú er vorið að koma og allir að ranka við sér eftir vetrardvölina, meira að segja kemur hér smá  svona vorblogg frá mér, ég varð illilega var við vorið áðan, ég opnaði mér einn kaldan, vippaði mér út á pall og grillaði hamborgara fyrir okkur hjónaleysin, áður en ég vissi af hafði ég flækt mig illilega í ógeðslegum köngulóarvef sem virtist vera allstaðar, ég fæ alltaf hroll þegar ég fer að spá í hvar fjandans köngulóin er þegar svona gerist, í hárinu, á enninu, á öxlinni eða þvældist hún niður um hálsmálið og þaðan niður í nærbuxurnar til þess eins að bíta mig í typpið, og hvað gerir maður, jú maður hleypur inn í herbergi, rífur sig úr fötunum, grýtir þeim á rúmið og stekkur í sturtu, þar skoðar maður djásnið og hrósar happi yfir að hafa sloppið með þetta í enn eitt skiptið.

Á meðan þá fer kvikindið af bolnum og undir sængina, bíður svo örugglega glottandi þar til maður fer að sofa,svo vaknar maður við smellinn sem heyrist þegar hún skellir saman tönnunum og hangir föst í aumingja djásninu, áts hvað mig hlakkar ekki til þessa martraðar.

 

Af okkur er annars bara fínt að frétta, ég og Gugga erum að taka mótorhjólaprófið og búin með leiðinlegasta hlutann af því ferli, ökuskólann, þvílíkt bull maður, nú tekur við verklegi hlutinn sem verður örugglega öllu skemmtilegri.

 

Ég dró Guggu með mér út að hjóla í kvöld og fórum við uppí gryfjur, ógeðslega gaman og ég fer ekki ofan af því að skemmtilegra fjölskyldusport er ekki hægt að hugsa sér fyrir, núna erum við að vinna í að fá hjól fyrir stelpurnar og allt stefnir í að fyrsta hjólið verði keypt á morgun, en það er flott 50cc hjól fyrir Sigurbjörgu, þá fer nú skúrinn að verða eins og ég vil hafann, ekki þverfótandi fyrir græjum á alla familíuna.

 

  Í janúar tók ég mig til við að gera upp litla baðherbergið, byrjaði á að moka öllu þar út og gera það algjörlega fokhelt, og svo, hmmm.

 

Baðherbergið er semsagt fokhellt ennþá.:^)

 

Jæja þetta er orðið gott í bili.

 

Kv Finnsi sem ætlar að blogga fljótt aftur.:$


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.03.2008 20:38:30 / finnsi

Páskastuð

Gleðilega páska

  http://tbn0.google.com/images?q=tbn:ffZsq3iUYosKQM:http://img517.imageshack.us/img517/2548/moon1xe.jpg


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.12.2007 23:20:16 / finnsi

Jólastuð

Gleðileg jól

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

12.12.2007 16:12:31 / finnsi

Jóla Jóla

  Já hér í sveitinni er jólastússið í hámarki þessa dagana,  við erum að missa okkur í tiltekt, þrifum og svoleiðis vandræðum. 

Þetta byrjaði alltsaman fyrir rúmri viku þegar  ég rétti gömlu húfu og vettlinga ásamt hamri, borvél, skrúfum og 200 metrum af illa flæktri jólaseríu og skipaði henni út í kuldann til að lýsa upp húsið með þeim fáu perum sem virtust vera í lagi.  

Þetta tókst ekki betur en svo hjá mér að 5 mínútum síðar vorum VIÐ komin út,  með sultardropa á nefinu og hálfkalin á puttunum við að koma þessu upp. 

7 klukkutímum síðar þá vorum við búin að festa grenidruslurnar á húsið ásamt fullt af seríum sem við fengum á endanum til að virka nánast því fullkomlega.   

Svo fór öll helgin í að reyna að koma húsinu í lag fyrir jólin,  það er einhvernveginn alltaf þannig, að maður endar alltaf í tómu rugli ef maður ætlar að gera eitthvað smotterý, td þá eru 3 mánuðir síðan ég fór út í skúr til þess að taka til á vinnuborðinu mínu, það endaði nottla með ósköpum sem ég er enn að reyna klóra mér útúr, ekki nóg með taka draslið af borðinu heldur þurfti ég að brjóta niður veggi, brjóta uppúr gólfi, steypa í gólfið, setja upp ógrynni af hillum, mála og svo enda ég líklega á að setja nýja bílskúrshurð líka. 

Allavega var þetta eins um helgina, maður gat  ekki látið nægja að skúra bara og þurrka af, við þurftum að byrja á Ikea, þaðan komum við út talsvert fátækari og hlaðin af enn fleiri verkefnum en upphaflega stóð til.  Haugur af hillum fyrir stelpurnar og allskyns jóladót sem þurfti að hengja upp og koma á rétta staði,  50-60 borgötum og jafnmörgum skrúfum síðar þá gat maður loks hent sér í sturtu og skellt í sig smá jólaöli eftir allt streðið.

Nú er allt að verða klárt fyrir jólin, fyrir utan pakkana, og þá get ég loks haldið áfram að rembast við að koma skúrnum í lag.

Óverendát


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 09:51:58 / finnsi

Sumarbústaðarferð í snjókomunni

Á fimmtudaginn var, skelltum við okkur upp í Brekkuskóg, ferðin reyndist lífshættuleg og sluppum við með naumindum við allskonar slys og árekstra, stelpurnar fengu nefnilega að keyra mestalla Lyngdalsheiðina, sú fyrsta spólaði af stað og endaði uppá barði, önnur fór næstum útaf (oftar en einu sinni), þriðja keyrði næstum á brúarhandrið og svona mætti lengi telja, en af einhverjum óskiljanlegum ástæðum þá sluppum við án meiriháttar meiðsla, og vorum komin um 5 leytið í bústaðinn, fyrsta verkið þar er nottla að græja pottinn, svo var bara þetta venjulega, borðað, spilað, dansað og sungið. Á föstudagskvöldið komu svo Kristín og Danni með stelpurnar og þá fyrst hófst nú gamanið maður. Danni datt íða, Kristín varð brjáluð, Svava vildi ekki fara að sofa og Victoría sá um að rústa bókstaflega bara öllu. Ótrúleg fjölskylda sem fer sko ekki framhjá þér án þess að þú fyllist skelfingu og ótta um líf þitt og eignir. Þau voru ekki búin að vera þarna nema í rétt rúman sólarhring og shitt maður, allt var í rúst og þau voru meira að segja búin að fokka upp rafmagninu í allri Árnessýslunni. Það þurfti að kalla út einhvern gaur til fixa þetta mál, samkv frétt á mbl þá lenti hann í allskonar hrakningum, festi bílinn og þurfti að fá gröfu til að losa hann omfl, sem varð til þess að það tók tæpa 3 tíma að koma þessu í lag. Á meðan þá grilluðum við 9 pylsur og 2 læri, 14 stórar grillkartöflur og 2l af sósu sem var mölluð á grillinu, þetta var semsagt fyrir 4 fullorðna og 5 börn. Að sjálfsögðu kom svo rafmagnið aftur þegar öllu þessu var lokið og seinustu bitarnir voru að renna niður. Eftir þetta var svo spilað, farið í pottinn og svo bara í háttinn.

Reyni að bomba einhverjum myndum inn síðar. 

( er nebbla að vinna sko )

 Kv Finnsi


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8